|
Talning
Fyrir 1246 dögum
Hið mikla Busaball!
Heimsóknir
Í dag: 22 Alls: 71005
|
25.09.2008 18:18:45 / 1-effeff
NÝ OG BETRI SÍÐA
www..3-FS.central.is
»
21.09.2008 22:03:13 / Palli
»
21.09.2008 01:11:14 / 1-effeff
Auður er ávallt sæt og fín eins og litla dúkkan mín Ásthildur er rauðhærð og stolt en ei mærð Ástrós , er tískudrós Árna og Árna enginn þekkir í sundur Bergþóra er algert undur Bryndís gella er og sýnir það hvert sem hún fer Dýrfinna er úr sveit en er enginn gömul geit. Eva er djammdýr en er enginn kýr Egill er steik númer eitt það þykir honum ekki leitt Guðrún er ljúf og trúir ennþá stúf. Helga Dagný er snillingur það er enginn ruglingur Helga Jónas er hlátursmild hlær mikið að vild Hlynur er dularfullur en ekki í baði notar bubblur Hörður drepur dýr til gleði hann okkur það um daginn téði(hljóðmyndunareignarfall af að tjá) Íris er rokkari en enginn skoppari Kolbrún er með munnræpu hún talar rétt með tæpu Lára Hrönn alltaf með brosið það mætti halda að það væri frosið Magnús ávallt fyndin er Sókrates hann vinnur vel Móeiður alltaf með andlitið flott og er hún algert skott Óli Björn með tilvistarkreppu við þekkjum hann ekki með réttu Ólafur krossarann elskar mikið ekki frá því hefur hann vikið Palli er hottie á háu stigi það er sko enginn lygi Runni er alltaf rosa bitur hann er sko egg vitur Sunna er ljúf og góð og er hún ansi fróð Þórdís skrifaði þetta blogg en aldrei ibbar hún gogg?
Loksins er þetta blogg enda ég vill þetta ykkur senda með ást og tryggð ég kveð nú með syrgð
Þið eruð með stóran böll og lesið þetta vonandi með hlátrasköll
Verið nú sæl á mánudaginn ekki vil ég heyra væl
í bæinn ég held ég bíð eftir að verða seld
??????????????????????????????????????????
»
16.09.2008 21:07:38 / 1-effeff
.....Á ÉG AÐ BYRJA  HVAR VORUÐI ? Ég á ekki til orð...ég, helga jónas, littla systir mín og tveir aðrir sem ég veit ekki hverjir eru vorum EINU sem mættum til að styðja, þetta er ekkert nema hneiksli.....vandræðalegt hneiksli  Ættuð að skammast ykkar, allavega smá. ENNN, þá hef ég aðrar fréttir að færa.... VIÐ UNNUM OKKAR FYRSTU UMFERÐ Í SÓKRATES  Já þið lásuð rétt, þær Þórdís og Bryndís Guðmundsdætur og Magnús Ellert rúlluðu þessu upp á móti 3 T, sem stóðu sig samt sem áður mjööög vel, við erum bara erfiðir andsæðingar.  Nú getum við öll hoppað af gleði, og nú ætla gáfuðu þremeningarnir okkar að fara að leggjast í bækurnar.. heimspeki, saga og náttúruvísindi og E! channel... Óskum okkur til hamingju, og þeim með stórglæsilegann sigur. En sláum ykkur í framan fyrir að mæta ekki og styðja ekki ykkar bekk.  Ég vil ALDREI sjá þetta gerast aftur... hvernig haldiði að þeim hafi liðið ?? enginn stuðningur.... kippum þessu í lag  (vona að þið séuð ekki komin með æluna uppí kok af bloggunum mínum.... ætla mér að vera súper-bloggari) jæææææja, þökkum líka storminum Ike fyrir komuna og bjóðum góða nótt. kveð, helga dagný.
»
15.09.2008 23:21:49 / 1-effeff
JEIJ Bryndís, Þórdís Halla & ;"> Egill ætla að vera hetjur og keppa fyrir okkar hönd í Sókrates   Allir eru voða þakklátir og við þökkum þeim KÆRLEGA fyrir að ákveða að láta slag standa og taka þátt.... Við ætlum ÖLL, sem erum ekki að vinna í kvöld, að mæta uppí ;"> UPPSALI klukkan 20:00  Tímanlega  Og hvetja þau til sigurs Hla; font-weight: bold;">kka til að sjá y; font-weight: bold;">kkur öll....helga dagný.
»
13.09.2008 18:14:24 / 1-effeff
Kæru bekkjarfélagar  Ég hef mjög slæmar fréttir að færa... Þetta blessaða fyrirpartý sem var hjá mér fór úr böndunum.. og íbúðin endaði í mjög slæmu ástandi.. Þannig er mál með vexti að einhver aðili steig oní saur og ég býst fastlega við að þetta hafi verið hundasaur, og labbaði upp allan stigann sem er teppalagður, og skildi þar með eftir sig voða fína slóð af hundaskít sem er nú fast í teppinu. Ég er búin að vera síðan á miðvikudaginn að reyna að ná þessum fjanda, en skíturinn fer ekki og lyktin ekki heldur. Svo ég þarf að teppahreinsa þennan viðbjóð, ekki get ég gert það sjálf svo ég þarf að kaupa mér aðstoð, og það kostar 1500 krónur. Ég vona að enginn hafi á móti því að þær krónur fari úr bekkjarsjóð, annars má sá hinn sami endilega koma og teppahreinsa hjá henni systur minni, því hún er alls ekki kát að hafa lánað mér íbúðina og ég hafi skilað henni svona. Vildi bara láta vita af stöðu mála... Takk og bless, Helga Dagný
»
11.09.2008 22:32:24 / 1-effeff
Góða kvöldið þriðju eff ess -ingar  Takk fyrir mjög gott gærkvöld.. þetta var glimrandi gaman  Ennnnn, nú er komið að öðru... 1.umferð Sókratesar er 9-30 september og við erum sett á 16.september á móti 3.T Þetta er á þriðjudaginn!
Oooog við erum ekki komin með lið... eða var einhver sem var búinn að bjóða sig? Allavega þurfum við að fara að redda því  ENDILEGA BJÓÐIÐ YKKUR FRAM, þið eruð öll bráð gáfuð með tölu og getið rúllað þessari spurningakeppni upp.. ég vildi að ég væri líka svona fróð svo ég gæti farið.. enn það eru ekki allir jafn heppnir... Og svo er líka Sófía, það vantar líka þar, 3 keppendur og 1 liðstjóra. Plísplísplís bjóðið ykkur fram. 
Kveð, Helga Dagný 
»
09.09.2008 14:55:58 / 1-effeff
Heil & Sæl  Jæja, þá er busaballið á morgun einsog ég vona að þið öll vitið. Allir búnir að kaupa miða og finna föt og svonna  Fyrirpartýið verður að Fálkagötu 4, sem er gult að utan, þetta er þrem húsum frá Háskólaprent (held ég að þetta heiti) á suðurgötunni og svona 5 húsum frá Björnsbakarí á Fálkagötunni. Þetta verður semsagt haldið heima hjá systur minni, og ég ber ábyrgð á öllu þarna svo ég ætla að biðja ykkur um nokkra hluti : - Passa að hella ekki niður úr glösunum á gólfið
- Vera sæmilega skýr í hausnum svo þið liggið ekki slefandi á gólfinu, ekki smekkó og Bryndís verður með myndavél á sér svo ég myndi passa mig
 - Ooog drekkið ekki allt vit frá ykkur þar sem við ætlum öll að komast á ballið

Það er mæting sirka hálf 9 með bros á vör, og svo förum við bara á ballið 10-hálf 11... húsið opnar 9 skildist mér og lokar 12...Við tökum bara leigubíl niðrá Nasa, eða þá labba þeir sem vilja, alls ekki langt að fara, bara niður suðurgötuna.. Það sem þarf að muna er : - Taka miðann með sér
- Hafa skilríki á sér
- Hafa pening fyrir taxa
- oooooog góða skapið
     
Gangi ykkur vel að læra undir prófið og sjáumst hress og spennt á morgun  Kveð, Helga Dagný.
»
01.09.2008 16:22:38 / 1-effeff
Jæja,, nú fer að líða að því að Sófía og Sókrates fara að skella á... Ef þið hafið hugsað við að lesa þetta, bíddu ha, hvað er sókrates? þá skal ég segja ykkur það.. Það er ný spurningakeppni Kvennaskólans og ætla bekkir að etja kappi í þessum bráðskemmtilega leik.. og jú þið ættuð að vita hvað Sófía er, gamla góða ræðukeppnin okkar. Ég hvet ykkur til þess að bjóða ykkur fram í Sófíu og Sókrates, þetta verður æðislega gaman ef við tökum þátt og mölum andstæðingana  1.umferð Sófíu er 4 september - 30 október og við erum sett á 2.október á móti 3.NÞ og umræðuefnið er lögleiðing kannabissefna. 1.umferð Sókratesar er 9-30 september og við erum sett á 16.september á móti 3.T Þetta ætti að verða svaka gaman og spennandi, og endilega bjóðið ykkur fram í það að gera bekkinn okkar stoltan.  Svo eitt í viðbót, einsog þið hafið tekið eftir þá er glæsileg Keðju síða komin upp.. þar ættu allir að skrá sig, velja nýskráningu og taka þátt í spjalli og svo er hugmyndabanki þar sem allir geta sagt sína skoðun og hvað mætti bæta, og svo bæta við upplýsingum um sig  Kveð, Helga Dagný
»
28.08.2008 20:25:45 / 1-effeff
»
10.08.2008 18:29:26 / 1-effeff
Kennararnir eru: Árný Björk , Ingibjörg Axel, Kistján og Margrét
»
14.07.2008 21:37:27 / 1-effeff
Takk fyrir geeeggjaða útilegu. mega fjör og sjúklega góð mæting.
»
10.07.2008 17:29:28 / 1-effeff
Skrifiði nöfnin ykkar fyrir neðan og ef einhver kemur með ykkur
Kv Maggi
»
09.07.2008 18:59:05 / 1-effeff
BEKKJARÚTILEIGAN VERÐUR!
þetta verður Laugardagur - Sunnudagur og er á sama stað og hún var í fyrra s.s Hvammsvík Mæting verður kl 7 og uppúr. Ef einhver á grill þá væri það SNELLD og endilega kommenta ef þið hafið grill....
LÁTIÐ ALLA Í BEKKNUM VITA...
EINHVER SEM NENNIR AÐ SENDA ÖLLUM SMS Í BEKKNUM ?
»
08.07.2008 17:34:47 / 1-effeff
Hæ bekkur! Það sem við þurfum að athuga , ákveða og plana fyrir útileiguna er:- Hringja á svæðið og athuga hvað kostar og hvort þeir leyfa okkur að vera þarna
- Ákveða hvort við förum laug - sunn eða föst - laug
- Fá að vita hverjir fara á bíl
- kl hvað þetta er
- Bekkjarsjóður fyrir kosnað inná svæðið
- Eigum við að segja Laugardag- Sunnudags
- Bekkjarsjóðurinn er rúmlega 11.þúsund að ég held, og hann ætti að öllum líkindum að duga fyrir kosnaðinum á svæðinu.
- Allir verða bara að redda sér í bílum og hringja í bílstjóra bekkjarins og athuga hvort það sé laust.. Hellingur af fólki með bílpróf.
- Mæta um kvöldmatarleytið 7-8 eða 8-9 og allir koma með eitthvað gott á grillið og við grillum saman?
- og þá þarf bara að hringja og spurja hvort það sé ekki alltí lagi að við komum þarna yfir eina nótt..
»
Síður: 1 2 3 ... 18
|
Dýrari týpan!

Hér sér 3.FS um að blogga um lífið og tilveruna. Styttir þér stundirnar þegar þú nennir ekki að læra.
|